Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,1% og er 4.800 stig við lok markaðar. Gengi krónu hefur veikst um 0,9% og er 149,4 stig en gjaldeyrismarkaður er enn opinn.

Velta á hlutabréfamarkaði nam um tveimur milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Danska vísitalan stendur í stað, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 0,6% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 0,1%.