Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,5% í dag og stóð við lok markaða í 634 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í gær en hækkaði fljótlega eftir opnun markaða í morgun. Mestu munar um 22,8% hækkun Bakkavarar en ekkert annað félag hækkaði yfir 1% í dag.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var tæpar 430 milljónir króna en þar af voru 317,5 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá var velta fyrir tæpa 51 milljón krónur með bréf í Bakkavör og tæpar 45 milljónir króna með bréf í Össur.