Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,3% í dag og stóð við lok markaða í 656 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7%, hreyfðist lítið fram yfir hádegi en lækkaði lítillega seinni part dags.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en það var Bakkavör sem leiddi lækkanir dagsins með því að lækkað um 6,4%. Þá lækkaði Century Aluminum um 5,1%.

Velta með hlutabréf var tæpar 197 milljónir króna en þar af eru tæplega 149 milljónir með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir rúmar 35 milljónir króna með bréf í Marel og fyrir rúmar 6 milljónir með bréf í Bakkavör.