Úrvalsvísitalan hækkaði í dag um 0,7% og stóð við lok markaða í 639 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,5% í gær og hélt áfram að hækka strax við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Bakkavör leiddi hækkanir dagsins, annan daginn í röð en félagið hækkaði um 15,4% í dag.

Velta með hlutabréf var tæpar 36 milljónir króna en þar af voru tæpar 28 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir tæpar 23,5 milljónir króna með bréf í Bakkavör og um 12,7 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.