Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,2% í dag og stóð við lok markaða í 4.312 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,5% í gær og hefur hækkað jafnt og þétt frá opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga. Eik banki leiddi hækkanir dagsins en það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem hækkuðu í dag.

Velta með hlutabréf var tæpir 3,6 milljarðar og þar af var rúmlega 1,4 milljarðar króna með bréf í Glitni.

Þá er velta fyrir um 690 milljónir með bréf í Kaupþing, tæpar 510 milljónir í Landsbankanum, um 370 milljónir í Straum, og um 140 milljónir í Exista annars vegar og Alfesca hins vegar en minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur nú veikst um 0,4% það sem af er degi en hefur rokkað nokkuð í dag. Þannig styrktist hún til að mynda um allt að 0,7% í morgun. Gengisvísitalan er nú 178,7 stig en gjaldeyrismarkaðir eru enn opnir.