Úrvalsvísitalan lækkaði í dag um 0,9% og stóð við lok markaða í 648 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,4% í gær, hækkaði lítillega við opnun í morgun og hafði um tíma hækkað um 0,7%. Seinni part dags lá leiðin þó niður á við.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en Century Aluminum leiddi lækkanir dagsins þar sem félagið lækkaði um 23,3%.

Velta með hlutabréf var tæpar 162 milljónir króna en þar af voru rúmar 117 milljónir með bréf í Marel.

Þá var velta fyrir um 23 milljónir króna með bréf í Össur og rúmar 13 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.