Úrvalsvísitalan hækkaði í dag um 1,2% og stóð við lok markaða í 660 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,3% á föstudag og hefur hækkað jafnt og þétt í dag.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var um 332 milljónir króna en þar af voru rúmar 160 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir rúmar 134 milljónir króna með bréf í Marel, rúmar 21 milljón krónur með bréf í Bakkavör og rúmar 10 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.