Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,1% í dag og er 5.133 stig við lok markaðar. Gjaldeyrismarkaður er enn opinn en krónan hefur veikst um 1,3% og er 157,3 stig, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Veltan á hlutabréfamarkaði nemur um milljarði króna.

Teymi [ TEYMI ] hefur hækkað um 4,7%, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Síðastliðinn fimmtudag var tilkynnt um að stjórn félagsins stefni á afskráningu úr Kauphöll Íslands. Hluthöfum er boðið að selja hluti sína á genginu 1,9 þó með bréfum í Alfesca. Gengi Teymis er 1,8 krónur á hlut við hádegi.

Century Aluminum [ CENX ] hefur lækkað um 12,9%. Síðustu sjö daga nemur lækkunin 12%. Álfélagið er það eina sem hefur hækkað á árinu.

Danska vísitalan OMXC hækkaði um 1,6% og sænska vísitalan OMXS hækkaði um 3,1%. Norska vísitalan OBX lækkaði um 2,5%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.