Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,4% í dag og stóð við lok markaða í 904 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 0,4% í gær, hreyfðist lítið í morgun en lækkaði svo lítillega seinni part dags.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 0,7% og stendur nú í 312 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins tvö félög, Föroya banki og Alfesca hækkuðu í dag. Þá leiddi Eimskipafélagið lækkanir dagsins og lækkaði um 20% en félagið kynnti neikvætt uppgjör sitt í morgun. Þá hefur gengi félagsins lækkað um 96,9% s.l. tólf mánuði.

Velta með hlutabréf var lítil eða aðeins um 95 milljónir króna. Þar af voru tæpar 57 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá ar velta fyrir tæpar 24 milljónir króna með bréf í Straum og tæpar 4,5 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.