Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] lækkaði í dag um 1,3% og stóð við lok markaða í 3.802 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði strax við opnun markaða í morgun fór hins vegar að lækka aftur rétt fyrir hádegi og lækkaði jafnt og þétt eftir það.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga. Enn á ný tekur Eimskipafélagið [ HFEIM ] dýfu og lækkar nú um 21,6%. Félagið hefur þannig lækkað um 53,6% síðustu sjö daga og um 86,3% frá áramótum.

Velta með hlutabréf var um 6,3 milljarðar króna. Þar af voru rúmlega 2,3 milljarðar króna með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæpir 2 milljarðar króna með bréf í landsbankanum [ LAIS ], rúmlega milljarður króna með bréf í Glitni [ GLB ] en minni velta var með bréf í öðrum félögum.

Gengisvísitalan krónu flýgur nú í hæstu hæðum en krónan hefur það sem af er degi veikst um 2,5% og stendur gengisvísitalan nú í 175,9 stigum. Þá fór gengisvísitalan í 178,5 stig um tíma í dag.

Gjaldeyrismarkaði eru þó enn opnir.