Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,2% í dag og stóð við lok markaða í 797 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 5,2% í gær og hafði undir hádegi í dag lækkað um 1,9% en hækkaði á ný eftir hádegi.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 0,8% og stendur nú í 273 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en Eimskipafélagið leiddi lækkanir dagsins og lækkaði um 44,4% og hefur því lækkað um 50% síðustu sjö viðskiptadaga en 61,24% síðustu fjórar vikur.

Straumur hækkaði hins vegar um 3,4% í dag en rekja má hækkun Úrvalsvísitölunnar eftir hádegi til þeirrar hækkunar. Straumur vegur þyngra í vísitölunni en Eimskipafélagið og kemur því í veg fyrir frekari lækkun hennar.

Velta með hlutabréf var um 330 milljónir króna en þar af voru rúmar 156,5 milljónir með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir rúmar 110 milljónir króna með bréf í Marel og rúmar 57 milljónir króna með bréf í Straum en minni velta var með bréf í öðrum félögum.

Velta með skuldabréf nam í dag rúmum 11,5 milljörðum króna.