Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,3% í dag og stóð við lok markaða í 876 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 1,7% í gær og hélt áfram að lækka við opnun markaða í morgun. Um tíma hafði vísitalan lækkað um 3,3% en hækkaði aftur seinni part dags.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 0,7% og stendur nú í 309 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni.

Century Aluminum hækkaði mest allra félaga annan daginn í röð en Eimskipafélagið hríðlækkaði hins vegar eða um 45,6%. Þannig hefur Eimskipafélagið lækkað um 98,3% s.l. 12 mánuði.

Velta með hlutabréf var um 460 milljónir króna en þar af voru rúmar 280 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá var velta fyrir rúmar 118,5 milljónir króna með bréf í Össur og tæpar 54 milljónir króna með bréf í Straum.

Velta með skuldabréf nam í dag tæpum 8,9 milljörðum króna en sem fyrr var mesta veltan með bréf í flokki RIKB 10 1210 eða um 2,5 milljarðar króna.