Úrvalsvísitalan hækkaði í dag um 1,3% og stóð við lok markaða í 4.220 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,5% í gær en hækkað strax við opnun markaða í morgun. Þá er Úrvalsvísitalan eina vísitalan sem hefur hækkað í Evrópu í dag.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var um 3,4 milljarðar en þar af var rétt rúmur milljarður króna með bréf í Kaupþing.

Þá var velta fyrir rúmar 880 milljónir með bréf í Straum, um 580 milljónir í Landabankanum, tæpar 430 milljónir í Glitni og tæpar 310 milljónir með bréf í Exista en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 0,8% frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 183 stig. Gjaldeyrismarkaðir eru þó enn opnir.