Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,5% í dag og stóð við lok markaða í 389 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 38,9% gær og stóð við lok markaða í 403 stigum. Þá hélt hún áfram að lækka strax við opnun markaða í morgun en hefur sveiflast lítillega í dag þangað til hún tók dýfu niður á við nú rétt fyrir lokun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en Exista hélt áfram að lækka í dag. Félagið lækkaði um 97% í gær og um 64,3% í dag. Þannig hefur Exista lækkað um 99,75% frá áramótum.

Í gær voru heimiluð viðskipta á ný með Exista og Straum í fyrsta sinn í rúma tvo mánuði, eða eftir að Fjármálaeftirlitið stöðvaði viðskipti með öll fjármálafyrirtæki í Kauphöllinni þann 6. Október s.l.

Straumur lækkaði um 58,9% í gær en um 2,7% í dag.

Heildarvelta með hlutabréf var um 196 milljónir í dag en um hádegi höfðu aðeins 47 milljónir skipt um hendur.

Mesta veltan var með bréf í Marel eða rúm 71 milljón króna.

Þá var velta fyrir rúmar 63 milljónir króna með bréf í Straum og tæpa 41 milljón króna með bréf í Össur.