Úrvalsvísitalan stóð nánast í stað í dag en hún hækkaði um 0,01% og er 8.280 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 10,3 milljörðum króna.

Straumur-Burðarás hækkaði um 1,62%, Atlantic Petroleum hækkaði um 1,42%, Flaga Group hækkaði um 1,06%, Mosaic Fashions hækkaði um 0,59% og Actavis Group hækkaði um 0,56%.

Föreya banki lækkaði um 5,1%, Össur lækkaði um 1,36%, FL Group og 365 lækkuðu um 1,34% og Icelandair Group lækkaði um 1,26%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,32% og er 114,4 stig.