Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 0,2% í dag og stóð við lok markaða í 638 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.
Vísitalan hækkaði um 0,2% í gær, hélt áfram að hækka strax við opnun í morgun en tók þá sveiflu niður á við og rokkaði í kringum núllið fram eftir degi.
Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en Föroya banki og Century Aluminum voru einu félögin sem hækkuðu, þau hækkuðu bæði um 1,3% og leiddu þar með hækkanir dagsins.
Bakkavör leiddi lækkanir dagsins en félagið lækkaði um 2,1% en Marel lækkaði um 2% og Össur um 1,1%. Þar með eru upptalin þau félög sem hreyfðust í dag.
Velta með hlutabréf var sáralítil eða tæpar 80 milljónir króna en þar af voru tæpar 52 milljónir með bréf í Marel.
Þá var velta fyrir rúmar 19 milljónir króna með bréf í Össur en mun minni velta var með bréf í öðrum félögum.
Velta með skuldabréf var þó töluverð í dag og nam tæpum 11 milljörðum króna.