Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 0,2% á pollrólegum degi í dag og stóð við lok markaða í 572 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.
Vísitalan hækkaði um 1,4% fyrir helgi en rokkaði nokkuð í kringum núllið fram eftir degi í dag. Rétt eftir hádegi hafði hún hækkað um 0,7% en lækkaði þó aftur seinni part dags.
Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 0,6% í dag og stendur nú í 223 stigum.
Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en Föroya banki leiddi hækkanir dagsins með því að hækka um 1%. Þá hækkaði Bakkavör um 0,7% en ekkert annað félag hækkaði í dag.
Össur leiddi hins vegar lækkanir þriggja félaga þegar félagið lækkaði um 2,4%. Þá lækkuðu Century Aluminum og Marel um 1,2% hvort.
Velta með hlutabréf var sem fyrr segir sáralítil, tæpar 100 milljónir króna en þar af voru tæpar 45 milljónir með bréf í Össur.
Þá var velta fyrir rúmar 23 milljónir króna með bréf í Marel en mun minni velta var með bréf í öðrum félögum.
Velta með skuldabréf nam í dag rúmum 5,8 milljörðum króna sem er nokkuð undir meðaltali.