Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,01% og er 6.243 stig við lok dags, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 2.580 milljónum króna.

Alfesca hækkaði um 1,03% og Actavis Group hækkaði um 0,15%.

Vinnslustöðin lækkaði um 2,17%, Marel lækkaði um 1,27%, FL Group lækkaði um 0,88% en félagið birti uppgjör sitt í dag, Dagsbrún lækkaði un 0,65%, Icelandic Group lækkaði um 0,63% og Avion Group lækkaði um 0,61%.

Gengi krónu veiktist um 1,82% og er 121,8 stig.

Sérfræðingar rekja veikinguna til þess að Fitch kynnti skýrslu sína um lánshæfismat ríkisins í dag, ásamt því sem Seðlabankinn tilkynnti á föstudaginn hann hygðist taka erlent lán til að styrkja gjaldeyrisforðann sinn, sem erlendir aðilar gætu lesið sem að bankinn óttaðist efnahagskreppu og vildi styrkja sig. Sérfræðingar segja það þó eðlilegt skref vegna aukinna umsvifa í hagkerfinu.

Í þriðja lagi hefur markaðurinn verið taugaveiklaður vegna þess að fjárfestir fór upp á móti krónu en lítil velta var á markaðnum og smitaði það út frá sér.