Úrvalsvísitalan hækkaði í dag um 1,9% og stendur því í lok ársins í 352 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan hefur því lækkað um 94,3% á þessu árin en hún stóð í 6.144 stigum í upphafi árs.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í dag. Straumur og Bakkavör hækkuðu um 5,1% og 3,7% en Eik banki lækkaði í dag um 18,3%.

Velta með hlutabréf var um 344 milljónir króna en þar af voru tæpar 210 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir tæpar 75 milljónir króna með bréf í Marel og tæpar 43 milljónir króna með bréf í Straum.