Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 4,3% í dag og stóð við lok markaða í 814 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 3,4% í gær en hefur lækkað nokkuð jafnt og þétt í dag, þó sérstaklega seinni part dags.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 2,2% í dag og stendur nú í 265 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en Straumur, sem leiddi 3,4% hækkun Úrvalsvísitölunnar í gær, lækkaði um 7,1% í dag og leiddi þar með lækkanir dagsins. Straumur hefur þó hækkað um 1,2% í þar sem af er þessari viku og 11,2% á s.l. fjórum vikum.

Aðeins tvö félög hækkuðu í dag, Century Aluminum um 3,9% og Föroya banki um 1%.

Velta með hlutabréf var um 365 milljónir króna en þar af voru tæpar 152 milljónir með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir tæpar 15 milljónir króna með bréf í Straum og rúmar 88 milljónir króna með bréf í Marel en mun minni velta var með bréf í öðrum félögum.

Velta með skuldabréf nam í dag rúmum 14,4 milljörðum króna.