Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,99% í dag og mest hækkaði gengi bréfa Landsbanka Íslands, eða um 4,23%, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Íslands.

Gengi bréfa Actavis hækkaði um 2,69%, Straumur-Burðarás um 2,69%, Kaupþing banki hækkaði um 2,38% og FL Group hækkaði um 1,67%.

Gengi krónunnar veiktist um 1,21% og endaði gengisvísitalan í 123,9 stigum.