Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði í dag um 1% og stóð við lok markaða í 4.225 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Þetta er í fyrsta skipti í fjóra daga sem Úrvalsvísitalan hefur hækkað við lok markaða.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en lítil breyting varð á töflunni frá því í morgun.

Velta með hlutabréf var um 2,3 milljarðar króna. Þar af voru rúmlega 600 milljóna króna velta með hlutabréf í Kaupþing [ KAUP ], um 520 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 390 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og um 225 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] en minni velta var með önnur félög.

Krónan hefur styrkst um 0,8% það sem af er degi og er gengisvísitalan nú 158,6 stig. Gjaldeyrismarkaðir eru þó enn opnir.