Úrvalsvísitalan hækkaði í dag um 0,8% og stó við lok markaða í 644 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Þá styrktist krónan styrkst um 4% í dag, fyrsta daginn eftir að hún var svo að segja sett á flot á ný, en við lok markaða stóð gengisvísitalan í 240 stigum.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7% í gær og hélt áfram að hækka við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var um 136 milljónir króna en þar af voru um 69 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir rúmar 23 milljónir króna með bréf í Marel, tæpar 22 milljónir með bréf í Bakkavör og tæpar 19 milljónir með bréf í Century Aluminum.