Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 1,1% í dag og stóð við lok markaða í 882 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.
Vísitalan lækkaði um 3,8% í gær, hélt áfram að lækka jafnt og þétt í dag.
Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 0,6% og stendur nú í 294 stigum.
Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni. Atlantic Airways hækkaði um 1,9%, mest allra félaga í Kauphöllinni en Straumur leiddi lækkanir og lækkaði um 4,9%.
Velta með hlutabréf var um 158 milljónir króna sem er nokkuð minna en verið hefur aðra daga í þessari viku en talsverður fjöldi viðskipta var með bréf í Straum fyrr í vikunni eftir að bankinn tilkynnti um kauprétti starfsmanna félagsins á mánudag.
Mesta veltan í dag var jú líka með bréf í Straum eða um 89 milljónir króna.
Þá var velta fyrir rúmar 30 milljónir króna með bréf í Össur, tæpar 26 milljónir króna með bréf í Marel, um 3,3 milljónir króna með bréf í Icelandair Graup en sáralítil velta var með bréf í öðrum félögum.
Velta með skuldabréf nam í dag tæpum 13 milljörðum króna sem eru mestu viðskiptin í þessari viku með skuldabréf.