Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] lækkaði í dag um 0,5% og var við lok markaða 4.257 stig samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var lítil fram eftir degi. Hún jókst þó lítillega eftir hádegi og var við lok markaða um 840 milljónir.

Þar af er voru rúmlega 300 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 270 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en talsvert minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 1,1% frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 158,4 stig.