Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 1,1% í dag og stóð við lok markaða í 892 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.
Vísitalan hækkaði um 0,4% í gær en hefur lækkað jafnt og þétt í dag og er nú komin á ný undir 900 stig en hún fór í fyrsta sinn undir 900 stig síðastliðinn föstudag.
Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 1,4% og stendur nú í 331 stii.
Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en ekkert félag hækkaði þó í dag.
Velta með hlutabréf var um 107 milljónir króna en þar af voru tæpar 48 milljónir króna með bréf í Marel.
Þá var velta fyrir tæpar 35 milljónir króna með bréf í Straum og tæpar 12 milljónir króna með bréf í Century Aluminu sem lækkaði mest allraf félaga í dag eða um 9,4%.