Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,5% í dag og stóð við lok markaða í 859 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 0,1% í gær en hafði lækkað jafnt og þétt í dag.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 1,4% í dag og stóð við lok markaða í 315 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni.

Velta með hlutabréf var um 87 milljónir króna en þar af 42,5 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir rúmar 27 milljónir króna með bréf í Marel og rúmar 10 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.