Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,4% í dag og stóð við lok markaða í 909 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 1,7% í gær og hélt áfram að hækka við opnun í morgun. Undir hádegi fór hún þó að lækka aftur og lækkaði jafnt og þétt það sem eftir lifði dags.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 1,9% og stóð við lok markaða í 314 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni. Aðeins tvö félög, Eimskipafélagið og Straumur hækkuðu í dag en Century Aluminum lækkaði mest félaga eða um 12,2%.

Velta með hlutabréf var um 160 milljónir króna en þar af voru rúmar 70 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir rúmar 34,5 milljónir króna með bréf í Straum og rúmar 20 milljónir króna með bréf í Marel.