Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði í dag um 1% og stóð við lok markaða í 4.287 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var tæpir 2 milljarðar. Þar af voru um 640 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæplega 500 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og um 270 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur nú styrkst um 1% frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 156,5 stig en gjaldeyrismarkaðir eru enn opnir.