Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,02% og er 8.135 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 9,6 milljörðum króna.

Eimskip hækkaði um 1,47%, FL Group hækkaði um 0,51%, Bakkavör Group hækkaði um 0,43%, Landsbankinn hækkaði um 0,27% og Teymi hækkaði um 0,2%.

Atlantic Petroleum lækkaði um 1,83%, Össur lækkaði um 1,41%, Icelandair Group lækkaði um 0,36%, Straumur-Burðarás lækkaði um 0,24% sem og Marel gerði.

Gengi krónu styrktist um 0,98% og er 114,4 stig.