Hlutabréf hækkuðu í Kauphöllinni í dag um 0,57% og stendur Úrvalsvísitalan nú í 8,102 stigum. Viðskipti með hlutabréf námu tæpum ellefu milljörðum króna.

Mest hækkaði 365 um 1,07%, Alfesca um 0,6%, Actavis um 0,58% og Atorka um 0,13%.

Aðeins tvö félög lækkuðu í Kauphöllinni í dag. Össur um 0,9% og FL Group um 0,17%.

Krónan heldur áfram að styrkjast. Eftir að hafa hækkað um 0,9% í dag er gengisvísitalan orðin 113,5 stig.