Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði í dag um 0,22% og stendur vísitalan í 5.955,14 stigum.

Atlantic Petroleum hækkaði mest allra félaganna í dag, eða um 2,96% og Íslandsbanki skipar annað sætið og hækkaði um 2,09%.

Dagsbrún lækkaði mest, 1,84%, og Atorka Group lækkaði næst mest, eða um 1,46%.

Íslenska krónan styrktist um 0,02% og vísitalan er 103,34 stig. Dollarinn hækkaði um 0,05% gagnvart krónunni en evran lækkaði um 0,14%