Hlutabréf lækkuðu í Kauphöllinni í dag um 0,57% og Gengisvísitalan er nú 7.981 stig samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Fjögur félög hækkuðu í viðskiptum dagsins. Atlantic Petroleum hækkaði um 1,47%, Actavis um 0,46%, Flaga um 0,45% og Teymi um 0,4. Ellefu félög lækkuðu, Atorka lækkaði um 2,2% og Kaupþing um 1%.

Krónan heldur áfram að styrkjast  en í dag nemur styrkingin 0,45% og var gengisvísitalan í 115,1 stigum þegar markaðir lokuðu.