Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,1% í dag og stóð við lok markaða í 863 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.
Vísitalan lækkaði um 2,2% í gær en hefur þokast niður á við í morgun.
Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) stóð hins vegar í stað og endaði í 319 stigum.
Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins eitt félag, Alfesca, lækkaði í dag en þrjú félög hækkuðu.
Velta með hlutabréf var lítil eða um 62 milljónir króna en þar af tæpar 40 milljónir króna með bréf í Straum.
Þá er velta fyrir rúmar 8 milljónir króna með bréf í Century Aluminum og rúmar 6 milljónir króna með bréf í Alfesca.