Úrvalsvísitalan lækkaði um 3% í dag og stóð við lok markaða í 658 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 5,8% í gær en rétt er að hafa í huga að fyrst í gær var opnað fyrir viðskipti með hlutabréf eftir þriggja daga lokun.

Þegar markaðir lokuðu á miðvikudag stóð Úrvalsvísitalan í 3.005 stigum en þegar opnað var á ný í gærmorgun stóð vísitalan í 720 stigum.

Í millitíðinni höfðu Kaupþing, Glitnir og Landsbankinn verið „núllaðir út“ og hafði Úrvalsvísitalan því lækkað um 76% í millitíðinni.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Lítil viðskipti annað hvort hækkað eða lækka fyrirtæki í Kauphöllinni. Þannig leiddi Eik banki hækkanir dagsins og hækkaði um 43,1%. Viðskipti með bréf í félaginu voru þó aðeins rétt rúmar 100 þúsund krónur.

Eimskipafélagið lækkaði um 66,7% í dag og hefur því lækkað um 98,6% frá áramótum. Rétt er þó að taka fram að aðeins hafa farið fram tvenn viðskipti með bréf í Eimskipafélaginu í dag fyrir um 11.500 krónur.

Heildarvelta með hlutabréf var 45 milljónir króna. Þar af voru tæpar 17 milljónir með bréf í Marel og tæpar 13 milljónir með bréf í Össur en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.