Úrvalsvísitalan hækkaði í dag um 0,7% og stóð við lok markaða í 658 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,1% í gær og hafði um tíma í dag hækkað um 1,4% þegar hún náði 663 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var rúmar 600 milljónir króna en þar af eru tæpar 360 milljónir með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir rúmar 235 milljónir króna með bréf í Össur.