Úrvalsvísitalan lækkaði í dag um 0,5% og stóð við lok markaða í 4.167 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 3,3% í gær en lækkaði strax við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög, Föroya banki og Straumur hækkuðu í dag.

Velta með hlutabréf var um 6 milljarðar í dag en þar af voru tæpir 2,7 miljarðar króna með bréf í Glitni en um kl. 11 fóru fram viðskipti fyrir tæpa 2 milljarða með bréf í félaginu.

Þá var velta fyrir rúma 1,7 milljarða króna með bréf í Kaupþing, rétt rúmar 700 milljónir með bréf í Landsbankanum og um 520 milljónir með bréf í Straum en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan heldur veikst verulega í dag eða um 2,9% og er gengisvísitalan nú 181,2 stig sem er nýtt met. Gjaldeyrismarkaðir eru þó enn opnir.