Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,5% í dag og stóð við lok markaða í 647 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í gær en byrjaði að hækka lítillega eftir opnun í morgun. Hins vegar var lítil hreyfing á henni eftir hádegi.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en aðeins eitt félag, Marel hækkaði í dag – um 5,5%.

Velta með hlutabréf var tæplega 94 milljónir krónur en þar af eru rúmar 60 milljónir með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir rúmar 17 milljónir króna í Century Aluminum og 10 milljónir með bréf í Össur.