Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,27% og er 6.370 stig við lok dags, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 4.575 milljónum króna.

Mosaic Fashions hækkaði um 4,24%, Flaga Group hækkaði um 0,71%, Icelandic Group hækkaði um 0,64% og Kaupþing banki hækkaði um 0,24%.

Glitnir lækkaði um 1,27%, Alfesca lækkaði um 1,21%, Avion Group lækkaði um 0,84%, Landsbankinn lækkaði um 0,76% og Össur lækkaði um 0,42%.

Gengi krónu styrkst um 0,31% og er 118,7 stig við lok dags. Sérfræðingar segja ástæðuna megi rekja til ákvörðunar Seðlabankans í morgun um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 14%.

Þetta er í fyrsta sinn síðan vaxtahækkunarferill Seðlabankann hófst í maí 2004 að vextir standa í stað á vaxtaákvörðunardegi en Seðlabankinn hefur hækkað vexti sautján sinnum síðan vorið 2004. Á þeim tíma hafa vextir hækkað frá því að vera 5,5% í að vera 14%.