Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,1% í dag og stóð við lok markaða í 939 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hafði þó hækkað tæp 4% fyrr í dag og stóð rétt eftir kl. 13:30 í 979 stigum en seinni part dags fór hún að síga niður á við aftur en það var Marel sem leiddi lækkanir dagsins.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði aftur á móti um 0,4% og stendur nú í 310 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins 6 félög hreyfðust í dag, þrjú hækkuð og þrjú lækkuðu.

Eins og fyrr segir var það Marel sem leiddi lækkanir dagsins með því að lækka um 5,4% en þar á eftir kom Össur sem lækkaði um 1,5%. Þá hækkaði Atlantic Petroleum um 8,1% en Straumur um 4,1%.

Velta með hlutabréf var um 660 milljónir króna en þar af voru rúmar 530 milljónir króna með bréf í Straum talsverður fjöldi viðskipta var með bréf í Straum eftir að bankinn tilkynnti um kauprétti starfsmanna félagsins.

Þá var velta fyrir rúmar 90 milljónir króna með bréf í Marel og rúmar 37,5 milljónir króna með bréf í Össur.

Velta með skuldabréf nam í dag um 7,2 milljörðum króna.