Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,9% og er 4.293 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.  Veltan á hlutabréfamarkaði nemur níu milljörðum króna. Tvö jafnstór viðskipti voru með Kaupþing [ KAUP ] og Landsbankann [ LAIS ] í morgun eða 2,3 milljarða króna. Kaupgengið var í báðum tilvikum dagslokagengi gærdagsins.

Century Aluminium lækkaði um 7,9% - líkt og sjá má í töflunni hér til hliðar - og sjö daga lækkun nemur 12,5% og Exista lækkaði um 7,5%, sjö daga lækkun félagsins nemur 15,5%.

Helstu vísitölur í Evrópu er rauðar: Danska vísitalan OMXC lækkaði um 2%, norska vísitalan OBX lækkaði um 1,9% og sænska vísitalan lækkaði um 2,1%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.