Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,34% og er 5.431,57 stig við lok dags, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni en ekkert félag lækkaði í viðskiptum dagsins.

Straumur-Burðarás hækkaði um 4,09%, Össur hækkaði um 2,40%, Dagsbrún hækkaði um 1,43%, Mosaic Fashions hækkaði um 1,33% og Glitnir hækkaði um 1,17%.

Gengi krónunnar styrktist um 0,17% og er gengisvísitala hennar 130,31 stig, samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum.