Úrvalsvísitalan lækkaði í dag um 0,6% og stóð við lok markaða í 375 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,8% á föstudag en um 42,2% í síðustu viku eftir að viðskipti með bréf í Existu og Straum voru heimiluð á ný.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Athygli vekur að aðeins eitt félag, Straumur fjárfestingabanki lækkar í dag en félagið lækkaði um 3,4% og leiðir því lækkanir dagsins.

Velta með hlutabréf var um 640 milljónir króna en þar af voru um 321 milljón krónur með bréf í Exista.

Rétt fyrir klukkan ellefu í morgun fóru fram viðskipti með rétt rúma 6,4 milljón hluti í félaginu á genginu 0,05 fyrir rétt rúmar 320 milljónir króna.

Þá var velta fyrir rúmar 130 milljónir króna með bréf í Straum, rúmar 87 milljónir króna með bréf í Össur og tæpar 84 milljónir króna með bréf í Marel.