OMXI15 vísitalan lækkaði um 1,9% í dag og stóð við lok markaða í 345 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 1% í gær og lækkaði jafnt og þétt í allan dag.

Þá stendur OMXI6 vísitalan, sem mælir sex stærstu félögin í Kauphöllinni, 936 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en líkt og í gær leiddi Straumur lækkanir dagsins en félagið lækkaði um 12,3% í dag.

Velta með hlutabréf var tæpar 150 milljónir króna en þar af eru tæpar 60 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir rúmar 40 milljónir króna með bréf í Marel  og tæpar 30 milljónir króna með bréf í Össur.