OMXI15 vísitalan lækkaði um 1% í dag og stóð við lok markaða í 352 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan stóð í stað við lok markaða í gær en lækkaði lítillega jafnt og þétt í dag.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en Straumur, sem lækkaði um 11,4% í dag leiddi lækkanir.

Velta með hlutabréf var um 185 milljónir króna en þar af eru rúmar 116 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá var velta fyrir tæpar 24 milljónir króna með bréf í Marel og rúmar 22 milljónir króna með bréf í Össur.