Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 3,4% í dag og stóð við lok markaða í 849 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.
Vísitalan lækkaði um 0,5% í gær en hækkaði þó strax við opnun í morgun og hafði undir hádegi hækkað um 3,8%. Lítillega dró þó úr lækkuninni seinni part dags.
Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 0,6% í dag og stendur nú í 271 stigi.
Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en Straumur (sem vegur þyngst í Úrvalsvísitölunni) hækkaði um 13% og leiddi þar með hækkanir. Þannig hefur Straumur hækkað um 9% í þar sem af er þessari viku og 15,9% á s.l. fjórum vikum.
Eimskipafélagið, sem hækkaði um 36,4% í gær, hélt áfram að hækka og hækkaði um 6,7% í dag. Viðskipti með bréf í félaginu voru þó sáralítil eða um 100 þúsund krónur.
Atlantic Petroleum lækkaði hins vegar mest allra félaga eða um 13% og þar á eftir kom Century Aluminum sem lækkaði um 5,4%.
Velta með hlutabréf var um 325 milljónir króna en þar af voru rúmar 159 milljónir með bréf í Össur.
Þá var velta fyrir tæpar 85 milljónir króna með bréf í Marel og tæpar 76 milljónir króna með bréf í Straum en mun minni velta var með bréf í öðrum félögum.
Velta með skuldabréf nam í dag rúmum 9 milljörðum króna.