Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,17% og 5.934 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvaktinni, en við lok markaðar í gær hafði úrvalsvísitalan hækkaði tólf viðskiptadaga í röð. Veltan nam 4.716 milljónum króna.

Sérfræðingar áttu von á að markaðurinn tæki að lækka, eftir að hafa átt góðan sprett, enda er eðli hlutabréfamarkaða að fara bæði upp og niður. Sér í lagi því fjárfestar sjá sér leik á borði og innleysa töluverðan hagnað á skömmum tíma en nokkur félög hafa hækkað um allt að 20% á síðustu fjórum vikum. Má nefna að Landsbankinn hefur hækkað um 20,2%, Glitnir um 19,16%, Össur um 18,79% og Alfesca 18,5%.

Rökin sem sérfræðingar nefna fyrir því að markaðurinn muni ekki lækka mikið, eftir vænar hækkanir, á næstunni er að verðmöt greiningardeildanna eru enn, mörg hver, yfir markaðsvirði.

Mosaic Fashions hækkaði um 2,92%, Atlantic Petroleum hækkaði um 0,71%, Alfesca hækkaði um 0,64% og Avion Group hækkaði um 0,3%.

Flaga Group lækkaði um 3,13%, Marel lækkaði um 2,53%, FL Group lækkaði um 1,64%, Landsbankinn lækkaði um 1,61% og Kaupþing banki lækkaði um 1,23%.

Gengi krónu styrktist um 0,60% og er 123,1 stig við lok markaðar.