Úrvalsvísitalan hækkar um 0,88% og er 6.139 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 11.252 milljónum króna.

Stærstu einstöku viðskiptin eru að Tryggingamiðstöðin seldi í Landsbankanum fyrir 2.520 milljónir króna á genginu 25,7. Tryggingamiðstöðin á nú jafnmarga hluti í bankanum og hún seldi í dag eða 98.077.499 hluti.

Næststærstu einstöku viðskiptin eru með bréf Straums-Burðarás. Um er að ræða utanþingsviðskipti fyrir 2.218 milljónir króna á genginu 16,9. Ekki hefur verið tilkynnt um viðskiptin til Kauphallarinnar.

Einnig voru tvo stór utanþingsviðskipti með bréf Kaupþings Banka. Markaðsvirði þeirra fyrri var 840 milljónir króna og fóru fram á genginu 840 og markaðsvirði þeirra seinna nam 808 milljónum króna á genginu 842.

Össur hækkaði um 2,52%, Bakkavör Group hækkaði um 2,16%, Kaupþing banki hækkaði um 1,57%, Alfesca hækkaði um 1,24% og Straumur-Burðarás hækkaði um 1,19%.

Actavis Group lækkaði um 0,93%, Mosaic Fashions lækkaði um 0,56%, Glitnir lækkaði um 0,5% og Grandi lækkaði um 0,41%.

Gengi krónu styrktist um 0,44% og er 122,4 stig við lok markaðar.