Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í dag og stóð við lokun markaða í 3.005 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,5% í gær og hélt áfram að lækka við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en ekkert félag hækkaði í dag og hefur því ekkert félag hækkað í þessari viku.

Úrvalsvísitalan hafði um tíma í dag farið niður fyrir 3.000 stig í fyrsta sinn í um 51 mánuð. Lægst fór hún í 2990 stig.

Eimskip lækkaði í dag um 51,6% í dag og hefur nú lækkað um 95% frá áramótum. Þó voru aðeins viðskipti fyrir um rétt rúmar 6 milljónir með bréf í Eimskip í dag.

Þá lækkaði Bakkavör um 27,2% og Alfesca um 10,2% í dag.

Í fyrradag voru viðskipti með fjármálafyrirtæki stöðvuð af fjármálaeftirlitinu og hafa enn ekki verið leyfð á ný.

Velta með hlutabréf var um 670 milljónir en þar af eru tæpar 280 milljónir með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir rúmar 145 milljónir með bréf í Bakkavör, rúmar 100 milljónir í Alfesca annars vegar og Marel hins vegar en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.