Úrvalsvísitalan lækkaði um 2% í dag og stóð við lok markaða í 635 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur því lækkað um 4% í þessari viku.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,9% í gær og hélt áframað lækkað strax við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en ekkert félag Úrvalsvísitölunnar hækkaði í dag.

Velta með hlutabréf var rúmar 360 milljónir króna en þar af voru tæpar 180 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá var velta fyrir tæpar 140 milljónir króna með bréf í Össur og tæpar 19 milljónir króna í Century Aluminum.